Eymd er Valkostur!! Hvort ertu fórnarlamb eða sigurvegari??

það eru engar hindranir... nema við sjálf!!!

11.04.2007 09:00:53 / EllenD

Nýtt blogg og þetta hættir.

Ég er komin með nýtt blogg http://edana.bloggar.is/

Skrifa ekki meira hér :haha:

kíkjið á mig ;)

Love Ellen:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 17:27:33 / EllenD

Styttist í þriðja tuginn...

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Höddi hann á afmæli í dag.  

Innilegar hamingjuóskir esskan.   Ekki langt í tuginn ;)

 

Jáms brósi á afmæli, ferlegt stuð.  En vá hvað þetta er fljótt að líða.  Árin hverfa frá manni :S

Furðulegt alveg....

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 16:32:24 / EllenD

Allt er nú til

Það vissi ég nefnilega ekki :)

Blogg í gegnum farsímann...  bara húmor :haha:

En hér er lítið að frétta, enn veikindi og eymd.  Ekkert gaman neitt :(

kveðja frá fýlupúkanum


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 15:38:02 / EllenD

Mobile

Athuga hvort blogg i gegnum gsm virki :-D

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 16:33:32 / EllenD

þvílík leti

Þetta er sko búið að vera þvílík leti helgi hér á bæ...

Ég fékk ástina mína heim á laugardaginn :D  Jibbý gaman og krakkarnir þvílíkt ánægð að fá pabba loksins heim.  En gamanið endist stutt hér á bæ því hann fer aftur á morgun :cry:  og verður í burtu í 3 vikur allavega.  En svona er lífið hér á bæ.

Jæja ég nenni þessu ekki í bili.  Sjáumst seinna

kveðja ein sem er að verða aftur ein

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 23:14:23 / EllenD

Skvísur blogga

 

Hæhæ

Varð að láta vita af nýju bloggi... 2 mega skvísur blogga og þar verður endalaus fræðsla og skemmtun  :haha:  Bloggarar eru Ég sjálf og yndið hún Norma mín  endilega kíkjið inn.  Erum að byrja og verur fljótt allt að gerast.   Slóðin er...  www.blog.central.is/krusimus 

 

Góða skemmtun 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 20:54:00 / EllenD

Gleði, gleði... Not!!!

Assaskotans helvíti.  Eins og sumir vita kannski þá vorum við að skipta um ofna hjá okkur í Janúar.  Síðan þá hefur dælan ekki verið að vinna rétt :( Endalaust að slökkva á sér og það er skítakuldi og ekkert heitt vatn...  Hún er að skíta á sig og ég held að hún sé að kveðja okkur :evil:  Við vorum að kaupa alla ofna og svo keyptum við gler í stofugluggann og það er ágætur peningur bara í því...  Og að þurfa að kaupa nýja dælu líka + það að við ætluðum að kaupa annan hitakút :frown:  ARRRGGGGGG..... Þetta má ekki vera að gerast

Þvílíkur dagur hér í dag.  Eitthvað er að fara í prinsinn minn því hann er búinn að vera brjálaður í skapinu í dag og ekkert smá köst sem hann er að taka :(  Ég er ekki að höndla það að vita ekki hvernig á að taka á honum.  Ég reyni að tala við hann og róa hann niður en það virkar ekki og hann þvílíkt talar skítt við mig.  Ég minni hann bara á þetta þegar hann fer að kvarta yfir sínum börnum :haha:     


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 18:54:43 / EllenD

Páskabingó

Er að finna verðlaun fyrir páskabingó kvenfélagsins...  Ef þið hafið uppástungur endilega tjáið mér það ;)

Er í seinni kantinum með að finna og sárvantar aðstoð

Kv. Ellen


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 10:22:41 / EllenD

Þvílíkar veðurbreytingar

En þessu á maður svosem að vera vanur hér á Íslandinu ;)

Fyrir nokkrum dögum svo kafsnjóaði, í gær var svo indælisveður sól og blíða en í dag er svo grenjandi rigning...  Skil etta ekki 8|

Það er búið að vera smá vesen hér á heimilinu um helgina hjá mínum prinsi...  Hann er ekki að gegna mér og svarar mér alveg ferlega.  Hann er sjö ára og ef ég segi honum að vera góður við systir sína og hann segir afhverju.. af því það á að vera góður við alla segi ég og þá segir hann... "SÓÓÓ"  Halló sko, sjö ára farinn að svara eins og unglingur.   Hann er að vinna sér inn hjá mér fyrir Gameboy tölvu og á að gera nokkur verk í 2 mánuði til að fá hana og er með lista og fær stjörnur fyrir daginn, hann er rosaspenntur en vonandi næ ég eitthvað að ná honum almennilegum með svona plani. 

Björgvin og Elís fóru út í garð í gær og bjuggu til snjókarl.  Alveg rosalega stoltir eða hittó... Þegar það var búið að gera hann var hann laminn í spað með skóflum!!!!!!!!   Og það var mesta fjörið ekki að búa hann til.  Húmor í þessu :D 

Elli kemur heim einhverntímann á milli föstudags og mánudags held ég.  Það verður fjör þá en það endist ekki nema í 2-3 daga því þá er farið aftur út í 3-4 vikur :cry:  Silja er alveg ákveðin í því að þegar hún verður stór eins og pabbi þá ætlar hún að veiða fiskinn :haha:  algjör prinsessa. 

Silja harðneitaði að fara í leikskólann í dag og er bara heima í rólegheitunum með mömmu.  Jæja við erum að fara að lita :D  Sjáumst


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 13:36:49 / EllenD

Gengur hægt en gengur...

Jæja þá er ég byrjuð að breyta heimasíðum barnanna en jeminn eini...  Ég eins og sagt var frá í gær finn ekki snúruna af myndavélinni og þar eru um 300 myndir af krökkunum en ekkert finnst :evil:  Ein að verða brjál á þessu.  Svo er svo langt síðan ég hef gert inn á hjá þeim og breytt að ég er búin að gleyma þessu öllu saman :S  En ég hlýt að muna... Bara prófa sig áfram eins og í fyrra skipti.

Ohh litli frændi (Anton Máni) er svooo lasinn :(  kominn með lungnabólgu og í eyrun.  Hræðilegt alveg, hann hefur verið svo mikið veikur undanfarið.  Endilega kíkjið á síðuna hans og kastið á hann batnaðarkveðju ;) 

Hér er komið brjálað veður og bíllinn minn þessi elska er fastur inni...  Það skefur svo rosalega fyrir framan hús og það verður strax ófært.  Það er líka endalaus mokstur hér á þessum tíma :D  gaman gaman

jæja ætla að finna út úr þessu heimasíðudæmi ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 21:49:47 / EllenD

Heimasíður opnar...

Gleður að segja að ég er búin að opna heimasíður barnanna :D

Það er spurning hvort mér takist að vera duglegri að skrifa inn á þær :!:  Látum það bara gerast.  Ég byrja vonandi í fyrramálið að setja þar inn.  En ég er enn ekki að skilja hvar DJÖ... snúran af myndavélinni er svo ég geti hlaðið inn öllum myndunum, er að verða :klikk: að leyta að henni.

Ef ykkur dettur í hug hvar hún gæti verið endilega látið mig vita ;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 21:01:22 / EllenD

Þvílík þreyta...

Jesús minn einasti...  Hvað haldiði að hafi komið fyrir mig í morgun???

ÉG svaf yfir mig!!!!!!!!  Í fyrsta sinn í mörg ár sem ég sef yfir mig.  Og krakkarnir allt of sein í skóla og leikskóla.  Maður skammast sín ekkert smá :^) 

En þrátt fyrir það þá hefur þetta verið fínn dagur.  Björgvin Bragi er að kúra hjá ömmu sinni núna :D  Rosa spennandi hjá þeim að fá að lúlla hjá ömmu ;) gamangaman

Ég fæ örugglega ekki að sjá ástina mína mikið þegar hann kemur heim næst :(  hann þarf að fara út úr bænum og mín bara ein heima meira 8|  Humm... hann verður búinn að vera um 3 vikur þegar hann kemur í land, svo fer hann í burtu í 2-3 daga sem er þeirra stopp og svo út aftur í um 3 vikur.  Hvernig fer mann eiginlega að þessu??  Ég bara spyr :haha:   Mín bjargast eins og alltaf. 

Það hljóta nú margir að vera ánægðir í dag þegar matarlækkunin er komin...  Ágætt alveg að það loksins lækki eitthvað í þessu landi.  Mætti meira lækka hér á bæ....

Puff...það sem maður skemmtir sér alltaf vel 1 hvers mánaðar... Borga og borga reikninga.  Það virðist aldrei minnka 8|  Furðulegt alveg.  En ég er ekki og ætla sko ekki að kvarta... Við erum með fyrir öllu og lifum út mánuðinn, það er það sem skiftir mig öllu máli.

Jæja endilega komið með eitthvað sniðugt hér... Og halló fólk!! Hvernig væri að skrifa í gestabók 8)  Ekki gleyma.

Love Ellen

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 18:43:59 / EllenD

Litli snillingurinn...

Jæja lítið að frétta hér...

Björgvin Bragi var á ólsen-ólsen keppni í dag í skólanum og hvað haldiði...  Hann var í 1.sæti :D  Algjört krútt og ekkert smá ánægður með sig sem hann má nú líka alveg vera ;)

Hann fékk í verðlaun Bláfellsborgara, franskar, sósu og kók og nú er ekkert annað að gera en að fá sér einn í tilefni dagsins.

Hann er búinn að vera skárri í skapi miðað við síðast en það er samt svo stutt í reiðina.  Það má ekkert þá er hann kominn upp :(  Vona að ég finni einhver ráð eða upplýsingar.

Silja Sjöfn er að lúlla hjá ömmu sinni.  Rosa ánægð að fá það.  Ég nota tímann og þríf á meðan :haha:  rosa gaman.

Ég ætla að rölta með Björgvini að sækja okkur að borða ;)

kv. Ellen

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 17:28:17 / EllenD

Frestun

Datt í hug að setja hér inn ef gleymst hefur verið að láta einhvern vita að...   En við ákváðum að fresta smá brúðkaupinu okkar :)  En það er ekki út af neinu öðru en að ég hef verið slæm í kvíða og öðru.  Við erum enn ástfangin og hamingjusöm ef einhver veltir því fyrir sér 8)

Kveðja ein 100% ástfangin

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 15:25:45 / EllenD

Hjálp allir sem geta.

Hæhæ allir saman...

Ég er alveg að bugast :cry:

Ég veit ekki hvernig ég á að taka á Björgvini og hans sjúkdómi (tourette syndrome)...  Hann er búinn að vera rosalegur :(  Hann fær svo rosaleg reiðisköst og svo hræðilegar hugsanir.  Um daginn var ég að banna honum og þá teiknaði hann mynd af mér með sverð í gegnum hálsinn og hausinn hann sagði við mig að hann vildi að ég myndi deyja :cry:

Í dag var hann ósáttur við mig og sagði "Ef þú gerir ekki eins og ég vil þá skaltu passa þig á mér" ég spyr á hverju ég eigi að passa mig.  Þá kemur hann með með blýant sem hann var búinn að ydda VEL og otar honum að mér!!!  Svo segir hann að þegar hann verði 8 ára þá muni hann flytja frá mér og ég mun ALDREI sjá hann aftur!!! ALDREI...

Ég settist inn með honum og talaði við hann og fékk út úr honum að hann fær stundum hugsanir um að hann vilji að ég deyji og að hann vilji deyja sjálfur því honum finnst hann svo ljótur.  :(

Ég veit ekki hvað ég á að gera eða hvernig ég á að vinna úr þessu hjá honum. 

Jesús minn... mér algjörlega fallast hendur.  Ég finn ekkert efni um þessa hegðun á netinu, hvorki hjá tourette samtökunum eða á öðrum vefum.  Ekkert!!!

Hjálp endilega ef þið vitið um einhverjar lausnir.

kveðja ein sem er ráðþrota og hrædd um litla strákinn sinn

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
RSS tengill
Ekki gleyma m�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 935 dögum
Dagsetning
14. mars 2010
Verslaðu á netinu :)